Kæru vinir og ættingjar, okkar bestu óskir um gleðileg jól og okkar bestu kveðjur með einlægri von um að þið hafið það sem allra best ,borðið góðan mat og verjið dýrmætum tíma með ástvinum ykkar. Við ætlum allavega að hafa það rrrrosa gott , borða mjög góðan mat, og "dunda" okkur svo við að opna pakkaflóðið sem komið er undir jólatréð. Svo ætlum við að njóta þess að vera saman-litla fjölskyldan og hitta góða vini og ættingja. Og þið sem ekki fenguð jólakort, ekki vera sár, ég skrifaði 75 stk, og hreinlega hafði ekki tíma til að skrifa fleiri ;)
Jólaknús frá okkur til ykkar Katrín og gullmolarnir
Oh my god hvað gamlan er glöð núna, prófin búin og ég komin í langþráð JÓLAFRÍ, er bara á fullu að pakka og taka til svo förum við, ég og skólastrákurinn vestur á morgun, haldiði að það verði gaman ;) ... Kristín Birna og Jón Elí bíða spennt eftir okkur og prinsessan er orðin svo fullorðin og dugleg að hún STÓÐ UPP í gær, (og mamman missir af þessu öllu), hún er sko hætt með pela, farin að borða allt og standa upp!! .. það verður svooo gott að hitta þau og knúsa þau, þetta er búinn að vera alltof langur tími án þeirra.
En vildi bara deila þessu með ykkur, svo er það bara jólahlaðborð á laugardaginn með Stebbunni minni (sem mig hlakkar ekkert smá til að hitta) og fleiru góðu fólki. Og þá ætlar nú gamlan að fá sér kannski einn öl eða svo ;)
jæja skrifa næst úr vestfirsku sælunni Kveðja Katrín
jæja já, blogg kl 06:15 ... já gamlan er vöknuð, vaknaði fyrir kl fimm til að fara að læra geðhjúkrun, úff þetta er nú skemmtilegt ;)
Bara þrír dagar í heimferð, og Stebba mín farðu að kæla bjórinn því það verður tekið á því á laugardaginn, þarf að drekka upp 3 vikna bjórkvóta hehehe :)
Held ég sé að verða rúgluð af þessum lestri öllum, en allavega langaði bara að prufa að blogga svona snemma morguns ... GEÐVEIKAR stuðkveðjur frá mér til ykkar :*
Og blessaður Kiddi frændi, gaman að heyra frá þér og innilega til hamingju með frumburðinn, þá eru bara 2 börn í viðbót og þú ert búinn að ná mér hehe. Þú mættir nú meila á mig myndum af erfingjanum ;) .....
En nenni ekki að skrifa meira ... var að koma úr hræðilegu prófi þar sem m.a. var spurt " hvað er LEGIÐ ÞUNGT stuttu eftir fæðingu?? Hvernig í ósköpunum á maður að vita það, hef aldrei vitað til þess að legið sé rifið úr til að vigta það, og afhverju þarf maður að vita þetta?
Arrrggg er pirruð, reið og þreytt og langar heim í víkina mína og hitta gullmolana mína :´(