... bull í brók!    

... bull í brók!

 

Velkomin(n) á síðuna mína, vonandi hefuru gaman af

Katrín Dröfn
að lesa núna

MSN

Sendu mér póst

Ýmislegt


myndasíðan okkar


fréttir úr sælunni
fréttir að vestan

Bloggarar


Una bestasta mín
Helena gella
Bekkurinn minn í HA
Rebekka skutla
Hjúkkugellurnar-Furulundi
Baldur
Ásta Marí­a
Bloggari dauðans
Martha sæta
Gyðjurnar góðu
Hulda Birna gella
Gógó kjarnakona
Elín frænka

Gestabókin
kvittaðu

Gamalt bull
janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 janúar 2007


eXTReMe Tracker


    mánudagur, júlí 26, 2004  

jæja gott fólk! 

þá er að koma að því ... leggjum í hann til höfuðborgarinnar eftir 2 daga!  Þar verður tekið á því í verslununum og verslað einsog brjálæðingur ... mar verður að eyða endurgreiðslunni frá skattinum hehe.  Svo förum við þ.e. ég og Helena mín út til eyja kl 12:30 á föstudaginn!  Þetta verður geðveikt .... ég að fara á mína fyrstu þjóðhátíð, ekki seinna vænna en drífa sig áður en maður verður þrítugur hehe.  En annars allt fínst að frétta Ágúst Helgi tók þátt í shell mótinu í fótbolta á laugardaginn og stóð sig einsog hetja .... það er yndislegt að horfa á þessa litlu gutta spila ...ef einn sest niður þá setjast þeir allir og svo hlaupa þeir bara útaf ef þeir eru þyrstir.  En þeir fengu verðlaun fyrir að vera prúðasta liðið í 7. flokki og afhenti Arnór Guðjohnsen Ágústi verðlaunin og minn maður þakkaði fyrir sig og tók í höndina á gamla fótboltakappanum.  Prinsarnir eru voða spenntir fyrir ferðalaginu, Jón Elí fer á Blönduós og Ágúst fer til pabba síns,  þetta verður mjög gaman fyrir okkur öll!  jæja nóg í bili .... verið góð við hvort annað.

    Katrin @ 12:03

~~~*~~~


    föstudagur, júlí 16, 2004  

Ég er að fara á þjóðhátíð eftir 14 daga ..... er svo spennt að ég er að deyja, pantaði farið í dag og búin að redda pössun og alles
 Party Smileys 
 






    Katrin @ 00:59

~~~*~~~


    þriðjudagur, júlí 13, 2004  

... og endilega skrifið svo í gestabókina, er alltaf að hitta fólk sem segir "já ég sá á blogginu þínu um daginn að...." en svo skrifar enginn í gestabókina :)

    Katrin @ 01:11

~~~*~~~

 

hæ hó alle sammen!
kominn tími til að skrifa eitthvað (allavega segir Ólöf það) hér er búið að vera nóg að gera, á þarsíðustu helgi fórum við mæðginin inní djúp til Stebbu og co, þar var mjög gaman einsog sjá má á myndunum sem ég setti í myndasafnið. Þar fórum við að veiða en við veiddum nú ekki mikið en prinsarnir fengu bara gefins fisk hjá öflugri veiðimönnum og komu færandi hendi með hann heim til ömmu, svo fórum við í sund í Reykjanesið sem var mjög notalegt. Svo á síðustu helgi skelltum við okkur á hestamannamót á föstudag og gistum í tjaldi, þar var mjög mikið fjör og fór Jón Elí ekki að sofa fyrr en klukkan hál þrjú um nóttina, vildi sko bara vera með í partýinu, þar var sungið og spilað á gítar fram undir morgun. Á laugardaginn var svo markaðsdagurinn hér í Bolungarvík og auðvitað misstu strákarnir ekki af því, Jón Elí kom heim voða rogginn með eiginhandaráritun á hendinni frá Birgittu Haukdal. Svo á sunnudaginn fórum við á sæluhelgi á Suðureyri þar sem að sjálfsögðu var mjög mikið stuð og þar hittum við fullt af ættingjum og vinum, það var nú haft orð á því hvar ég hefði eiginlega verið á laugardagsköldinu afþví ég mætti ekki á sæluhelgarballið, ætli sú gamla sé ekki bara að verða stillt ... kominn tími til hehe. Sumarið líður hratt og við verðum komin heim áður en við vitum af, strákarnir vilja helst fara að drífa sig strax HEIM, já þeir eru bara að verða Akureyringar held ég, vilja komast á leikskólann sinn og sofa í kojunni og leika með dótið sitt. Þetta er bara að verða ekta mömmu blogg hjá mér hehe .... jæja þetta er komið gott, er á næturvakt og ætla að fara að læra ... endilega kíkið á myndirnar
hafið það sem best

    Katrin @ 00:48

~~~*~~~