... bull í brók!    

... bull í brók!

 

Velkomin(n) á síðuna mína, vonandi hefuru gaman af

Katrín Dröfn
að lesa núna

MSN

Sendu mér póst

Ýmislegt


myndasíðan okkar


fréttir úr sælunni
fréttir að vestan

Bloggarar


Una bestasta mín
Helena gella
Bekkurinn minn í HA
Rebekka skutla
Hjúkkugellurnar-Furulundi
Baldur
Ásta Marí­a
Bloggari dauðans
Martha sæta
Gyðjurnar góðu
Hulda Birna gella
Gógó kjarnakona
Elín frænka

Gestabókin
kvittaðu

Gamalt bull
janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 janúar 2007


eXTReMe Tracker


    mánudagur, september 27, 2004  


Yndislegustu foreldrar í heima ... mamma mín (55) og pabbi minn (57) eiga afmæli í dag ... vildi óska að ég gæti verið hjá þeim núna!  Posted by Hello

    Katrin @ 11:41

~~~*~~~


    sunnudagur, september 26, 2004  

Án vinar get ég ei brosað.
Án vinar get ég ei grátið.
Án vinar þekki ég ei
tilfinningar mínar.

Án vinar þekki ég ei
annarra sorg,
annarra gleði,
annarra ást.
Án vinar þekki ég ekkert.

Án vinar hefði ég ei þig,
þína ást, þinn skilning,
þína gleði, þína sorg.

Án þín ætti ég ekkert.


Inga Jóna Kristjánsdóttir

    Katrin @ 21:35

~~~*~~~


    laugardagur, september 25, 2004  


það er ótrúlegt hvað maður getur fengið stráka til að gera fyrir einn spider man sleikjó hehe ;)  Posted by Hello

    Katrin @ 22:03

~~~*~~~

 

Góðan og blessaðan daginn! Rotating Heart

Jæja kannski tími til að skrifa eitthvað, ég semsagt fór ekki á EGO á síðustu helgi því Bubbi greyjið var veikur þannig að því var frestað, þeir verða í kvöld en ég ætla ekki að fara... mar djammar nú ekki á hverri helgi.Drunk Walk En við fórum nú samt út á síðustu helgi, kíktum í partý og svo á kaffi Ak, það var bara fínt fyrir utan allt skrítna fólkið á kaffi Ak. Svo er djamm á næstu helgi, náttfatapartý hjá Ólöfu á fimmtudag og svo SPRELLMÓTIÐ á föstudag ... baara gaman og mamma besta er að koma til mín á fimmtudag svo að uppáhaldsdóttirin komist á djammið hehe. Vá ég bjó til svo svaðalega góða pizzu í gærkvöldi úfff ... gestirnir rúlluðu út þeir voru svo saddir, ég er snilldarkokkur, alveg er það óskiljanlegt að svona góð húsmóðir einsog ég eigi ekki mann til að elda ofan í!! Cooking Dinner

Gummi besti bróðir minn á afmæli í dag, innilega til hamingju með það Birthday Babies og ég væri alveg til í að geta mætt í kökur, svo eiga mamma og pabbi afmæli á mánudag og svo styttist í mitt afmæli. Nóg að gera sko í afmælisgjafakaupum þessa mánuði ... spáið í því að af 5 manna fjölskyldu þá eigi allir afmæli í lok sept og í okt!!

jæja nóg í bili ... þvotturinn bíður

Knús frá Ak
Katrín úber húsmóðir Laundry






    Katrin @ 10:06

~~~*~~~


    miðvikudagur, september 15, 2004  

Ég er að fara á EGO á laugardaginn!!
vá það verður svo gaman hjá mér ,
allir að skella sér norður og koma með mér á ball ;)

    Katrin @ 23:22

~~~*~~~


    miðvikudagur, september 01, 2004  

1. september ... MERKILEGUR DAGUR! Í dag hófst nýtt kvótaár, frumburður minn hann Ágúst Helgi er 5 ára í dag og ég eignaðist lítinn frænda í dag þar sem Eyþór frændi og Jóna eignuðust son í nótt.

Skólinn er byrjaður og það er bara fínt, líst bara ágætlega á að vera byrjuð aftur.

Jón Elí var alls ekki sáttur við að eiga ekki afmæli í dag og varð hann alveg brjálaður í morgun yfir því, það var sama hvað hann sagði oft "pííííss (please) mamma má ég eiga afmæli í dag og gefa öllum krökkunum á leikskólanum ís..... þá ert þú besta mamma mín í öllum heiminum" svarið var alltaf nei þú átt afmæli í apríl ekki núna! Þannig að hann rauk í fýlu og sagði að ég væri leiðinlegasta mamma sín í öllum heiminum hehe hann er snillingur.

Annars er bara fínt að frétta, fékk smá kaupæði um helgina og keypti mér meðal annars aðra orkídeu, fjólubláa og passar hún vel við hliðina á hinni sem er hvít. Svo keypti ég mér líka myndaramma utan um myndina af Gústa bróðir, komin tími á nýjan rammi búin að vera í sama rammanum í 12 og hálft ár...... vá hvað tíminn er fljótur að líða.

jæja skrifa meira seinna
knús og kossar til ykkar frá Akureyrinni



    Katrin @ 17:44

~~~*~~~