... bull í brók!    

... bull í brók!

 

Velkomin(n) á síðuna mína, vonandi hefuru gaman af

Katrín Dröfn
að lesa núna

MSN

Sendu mér póst

Ýmislegt


myndasíðan okkar


fréttir úr sælunni
fréttir að vestan

Bloggarar


Una bestasta mín
Helena gella
Bekkurinn minn í HA
Rebekka skutla
Hjúkkugellurnar-Furulundi
Baldur
Ásta Marí­a
Bloggari dauðans
Martha sæta
Gyðjurnar góðu
Hulda Birna gella
Gógó kjarnakona
Elín frænka

Gestabókin
kvittaðu

Gamalt bull
janúar 2004 febrúar 2004 mars 2004 apríl 2004 maí 2004 júní 2004 júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 janúar 2007


eXTReMe Tracker


    miðvikudagur, október 27, 2004  

Minn elskulegi bróðir Ágúst Helgi á afmæli í dag, hefði orðið 32 ára. Nafni hans er búinn að kveikja á kertum og teikna mynd fyrir hann og hann er viss um að Ágúst engill komi svífandi inn til sín í nótt og sæki myndina. Aðal áhyggjurnar voru þær hvort að hinir englarnir mundu ekki örugglega baka afmælisköku fyrir hann og gefa honum pakka, hann er svo mikið yndi þessi drengur. En knús og koss til himna ... og ég sakna þín svooo elsku brói!

    Katrin @ 22:01

~~~*~~~

 


Flottur hehe  Posted by Hello

    Katrin @ 18:54

~~~*~~~


    þriðjudagur, október 26, 2004  

hæ hæ gott fólk!

jæja Helenu sætu finnst kominn tími á að ég bloggi um mitt skemmtilega líf .... það er nú ekki mjög margt búið að gerast, reyndar á síðasta fimmtudag fór ég á konukvöld létt 96,7 það var mjög gaman, fór með stelpunum í bekknum, fórum fyrst á Bautann og fengum okkur að borða, Sandwich Jón Elí kom með mér þangað og hann lék á alls oddi, leið ekkert smá vel innan um allar þessar sætu stelpur! Á laugardaginn var svo aftur djamm, fór á Eirarkvöld þar sem ljúfur bjór var drukkinn og svo kíktum við hjúkkugellurnar í Sjallann og OMG ég held ég hefði getað verið amman þarna inni, Grandma úfff hvað það er mikið af ungu fólki sem fer í Sjallann (eða þá að ég sé bara svona fjandi gömul, neee held ekki sko). Þannig að við skunduðum yfir á Kaffi AK sem var súrefnislaust með öllu en við dönsuðum samt smá og svo fór ég og keypti sveittann hammara og kom heim um fjögur, fínasta skemmtun. En já svo fór ég með Ágúst minn í hjartasónar í gær, en það kom sem betur fer bara vel út, það heyrðust einhver hjarta óhljóð hjá honum í 5 ára skoðuninni um daginn þannig að hann var sendur í tékk en allt í góðu og allt eðlilegt. Heartbeat

Svo er Gerður Ágústa sæta frænka mín í heimsókn hjá okkur, rosa gaman að hafa hana og svo fjölgar líka um einn í viðbót á morgun þegar hún Svava okkar kemur til okkar ... þannig að þá verður þetta orðið 5 manna heimili


jæja er þetta ekki bara orðið gott í bili Blow A Kiss






    Katrin @ 16:55

~~~*~~~


    þriðjudagur, október 05, 2004  

ennn eitt ár, en ekkert grátt hár :)

    Katrin @ 08:48

~~~*~~~


    mánudagur, október 04, 2004  


töffarinn minn, 3ja ára og pissar sko standandi því "allir krákar dera holleiðis" og þar af leiðandi pissar hann útum allt því hann nær varla uppá setuna, hann neitar að renna upp úlpunni og flíspeysunni því "hann er rrosa dæji" og t.d. í morgun fór hann út í 5 stiga hita með rennt frá! Hann vill stjórna því sjálfur í hvaða föt hann fer í á morgnana og verður mjög grömpí ef þau eru í þvotti! Hann stjórnar heimilinu og ef það gengur ekki þá rýkur hann inní herbergi og skellir á eftir sér .... já hann er snillingur þessi strákur og ég á hann ;)  Posted by Hello

    Katrin @ 22:57

~~~*~~~