hæ hæ gott fólk! jæja Helenu sætu finnst kominn tími á að ég bloggi um mitt skemmtilega líf .... það er nú ekki mjög margt búið að gerast, reyndar á síðasta fimmtudag fór ég á konukvöld létt 96,7 það var mjög gaman, fór með stelpunum í bekknum, fórum fyrst á Bautann og fengum okkur að borða, Jón Elí kom með mér þangað og hann lék á alls oddi, leið ekkert smá vel innan um allar þessar sætu stelpur! Á laugardaginn var svo aftur djamm, fór á Eirarkvöld þar sem ljúfur bjór var drukkinn og svo kíktum við hjúkkugellurnar í Sjallann og OMG ég held ég hefði getað verið amman þarna inni, úfff hvað það er mikið af ungu fólki sem fer í Sjallann (eða þá að ég sé bara svona fjandi gömul, neee held ekki sko). Þannig að við skunduðum yfir á Kaffi AK sem var súrefnislaust með öllu en við dönsuðum samt smá og svo fór ég og keypti sveittann hammara og kom heim um fjögur, fínasta skemmtun. En já svo fór ég með Ágúst minn í hjartasónar í gær, en það kom sem betur fer bara vel út, það heyrðust einhver hjarta óhljóð hjá honum í 5 ára skoðuninni um daginn þannig að hann var sendur í tékk en allt í góðu og allt eðlilegt. Svo er Gerður Ágústa sæta frænka mín í heimsókn hjá okkur, rosa gaman að hafa hana og svo fjölgar líka um einn í viðbót á morgun þegar hún Svava okkar kemur til okkar ... þannig að þá verður þetta orðið 5 manna heimili |