jæja gott fólk!
þá er að koma að því ... leggjum í hann til höfuðborgarinnar eftir 2 daga! Þar verður tekið á því í verslununum og verslað einsog brjálæðingur ... mar verður að eyða endurgreiðslunni frá skattinum hehe. Svo förum við þ.e. ég og Helena mín út til eyja kl 12:30 á föstudaginn! Þetta verður geðveikt .... ég að fara á mína fyrstu þjóðhátíð, ekki seinna vænna en drífa sig áður en maður verður þrítugur hehe. En annars allt fínst að frétta Ágúst Helgi tók þátt í shell mótinu í fótbolta á laugardaginn og stóð sig einsog hetja .... það er yndislegt að horfa á þessa litlu gutta spila ...ef einn sest niður þá setjast þeir allir og svo hlaupa þeir bara útaf ef þeir eru þyrstir. En þeir fengu verðlaun fyrir að vera prúðasta liðið í 7. flokki og afhenti Arnór Guðjohnsen Ágústi verðlaunin og minn maður þakkaði fyrir sig og tók í höndina á gamla fótboltakappanum. Prinsarnir eru voða spenntir fyrir ferðalaginu, Jón Elí fer á Blönduós og Ágúst fer til pabba síns, þetta verður mjög gaman fyrir okkur öll! jæja nóg í bili .... verið góð við hvort annað.