Það virðist vera ótrúlega erfitt að finna sér tíma til að blogga, alltaf svo mikið að gera hjá konunni sem er komin á fertugsaldur ;)
En afmælið mitt var alveg tær snilld, mikið af skemmtilegu og yndislegu fólki. Svo mættu líka Georg góði og Maggi besti frændi og þeir komu með leynigest sem olli mér næstum hjartaáfalli!! enginn annar en hann góðvinur minn Halldór Gunnar mætti með gítarinn sinn góða. Þeir voru að sjálfsögðu búin að semja lag um Kötu frænku og var viðlagið einhvern vegin svona... Katríííín !!! Nú ertu þrítug Drekkur alltof mikið vín Þú ert ekki tvítug
Bara snilldar texti!!!!
Svo létu mínar yndislegu vinkonur Ólöf, Elva, Fjóla og Birgitta semja tvo texta fyrir mig sem voru líka snilldin ein og auðvitað sungu þær fyrir mig þessar elskur.
Svo verð ég að þakka Unu minni, Önnu og Mörthu fyrir ómælda hjálp við amælisundirbúninginn... þið eruð æði.. luv ya.
Svo er bara brjálað að gera í skólanum og ástinni ... já ástinni því gamlan er bara komin með kærasta!!!! og er hvorki meira né minna á leið til Köben eftir 2 daga í helgarferð með kærastanum ... afþví að ég á nefnilega kærasta ... eru þið búin að ná því að ég á kærasta hehehehe
Jæja ætla að halda áfram að læra og fara svo að pakka niður ... gleði gleði
2. nóvember í dag, sem þýðir að það eru 15 ár síðan að ég missti Ágúst bróður, stóra bróðurinn með fallega glottið, stríðnisglampann í augunum og húmorinn í lagi, en samt svo góður og með svo fallegt og stórt hjarta. Ég sakna hans svo mikið og það ekki hefur sá dagur liðið síðastliðinn 15 ár sem ég hef ekki hugsað til hans ... en ég veit að hann vakir yfir okkur og passar okkur.