komin norður!!
já við mæðginin þ.e. ég og Ágúst Helgi komum norður á mánudaginn, urðum að drífa okkur norður í skólann. KB og JE urðu eftir hjá ömmu og afa :( ... söknum þeirra svoo mikið, en förum sennilega vestur á þarnæstu helgi í femingu hjá sætu frænku og svo er bara hálfur mánuður eftir það og þá er skólinn búinn og við tekur sumar í sælunni ;)
Páskarnir voru mjög fínir, Jón Elí mömmuson hélt upp á afmælis sitt á fösudaginn langa, hann var ekkert smá glaður. Svo varð hann fimm ára á mánudaginn, honum fannst nú ekkert voðalega gaman að mamma hans þyrfti að fara, varð bara hálf fúll litli mömmuprinsinn.
KB er búin að vera lasin, þurfti að fá sýklalyf og púst og alles :( ... æi mér finnst svo ömurlegt að vera svona langt í burtu frá henni, en þetta er nú að verða búið,verð bara að bíta á jaxlinn og láta mig hafa þetta. Bara ár eftir og þá útskrifast ég og verð besta mamma í heimi ;)
Svo kíkti ég nú á KAN comebackið á sunnudaginn, sem var bara snilld, ógesslega gaman skiluru ;) ... allavega skemmti ég mér konunglega og var ansi þreytt á mánudaginn hehe.
En best að halda áfram ekki nema 3 verkefni í gangi núna plús prófalestur.