Stebba er farin að rukka um fréttir þannig að hér koma þær! ;)
Afmælið hjá prinsessunni gekk rosalega vel, þrátt fyrir mikinn kvíða hjá elsta syninum yfir því að móðir hans myndi klúðra þessu því hún kynni örugglega ekkert að halda stelpu afmæli!
Svo eru þær nöfnur farnar til Bolungarvíkur, Kristín Birna og Anna Kristín, þær fóru á þarsíðustu helgi, og KB skellti sér að sjálfsögðu strax á Flateyrina góðu til að vera hjá fólkinu sínu þar. En núna er hún kominn aftur í víkina, Markúsi afa til mikillar gleði ?
Þannig að núna erum við bara þrjú í kotinu og söknum KB okkar rosa mikið, en það eru nú bara 8 dagar þangað til við brunum vestur og hittum allt það góða fólk þar sem okkur þykir svo vænt um.
Ágúst Helgi slapp EKKI við flensuna þetta árið einsog vonir stóðu til, hann er búinn að vera með hita síðan á mánudag!
Það er eitthvað verkefna æði í gangi hjá kennurum í hjúkrunarfræði og skilaði ég einu slíku í dag og hélt kynningu, þannig að þetta er búin að vera ansi strembin vika, prinsinn veikur, mamman að gera verkefni og svo til að toppa allt braut ég tönn í tvennt í fyrradag og þurfti að bruna til tannsa í flýti.... sumir dagar eru ekki mínir dagar! En ég kenni nú breyttu mataræði um þennan tann atburð því núna er ég ekkert búin að borða nammi síðan á laugardaginn og þá brotnar tönn, ætti nú kannski bara að hætta í þessu heilsu kjaftæði hehe ....
Við erum að snjóa í kaf hérna á Akureyri, en það vill til að ég er vestfirðingur og kann að keyra í snjó og á skóflu þannig að þetta hefur nú ekki mikil áhrif á mig ;) ... svoddan hörku tjellling !
Sennilega er aðalfréttin sú að ég fór nú bara ekkert að djamma á síðustu helgi, var svo stillt og góð O;) ... og er að spá í að vera jafn stillt þessa helgi.. því það eru jú að koma páskar og þá gerir maður nú eitthvað skemmtilegt... eða þá að ég verð bara stillt áfram og gifti mig bara og verði ráðsett húsmóðir í vesturbænum
jæja Stebba mín besta það er eins gott að þú nennir að lesa þetta allt ... því þetta var allt skrifað fyrir þig ... luv ya dúllan mín og hlakka til að sjá þig ... já og ykkur öll