Góðan daginn :)
Ég held að ég sé nú einn lélegasti bloggari landsins ... en engar fréttir eru góðar fréttir ;)
Árshátíðin var snilld, ótrúlega gaman og Addi Idol er bara snillingur hehe .... ég, Una, Elva, Gummi, Ólöf og Árni skelltum okkur saman ... mættum auðvitað of seint því strákarnir voru svo lengi að hafa sig til hehe ... við vorum ekkert smá flottar, allar í kjólum og gala kjóllinn sem ég keypti mér stóð sko fyrir sínu.
Þessi helgi fór svo í bókhald og aftur bókhald fyrir utan ísrúnt með börnunum og kósí kvöld... en svo seint á laugardagskvöldið ákváðum ég og Una að við yrðum að skreppa í Sjallann og þetta var sko góð ákvörðun hjá okkur, ekkert smá gaman ... Paparnir alltaf jafn góðir og við dönsuðum og bulluðum fram eftir nóttu ... svo fann Una mig ekki þegar heim átti að fara því ég var auðvitað í nætursölunni að láta einhvern gaur gefa mér samloku og pepsi max hehe ... en svo fór ég nú bara heim .. því ég er svo ótrúlega stillt og prúð alltaf hreint .... finnst ykkur það ekki ? ;)
Heimilið mitt hefur ekki sloppið við flensuna í ár því miður, Kristín Birna var með hita í 5 daga og núna er Jón Elí orðinn lasinn, vona að ég og Ágúst sleppum, við fengum þetta svo hressilega í fyrra - lungnabólgu og allan pakkann (jú og reyndar Kristín Birna líka) ... svo er auðvitað afmæli eftir 2 daga... prinsessan að verða 1 árs, þannig að ég ætla að druslast til að baka eitthvað svona milli þess sem ég dikta, stemmi af bókhaldið, læri og hjúkri Jóni Elí :)
Svo er auðvitað AFMÆLIÐ á næstu helgi, þá verður hún Ólöf mín þrítug... jibbí þá verður sko stuð á okkur
... svo fer mamma og Kristín Birna vestur á sunnudaginn, prinsessan ætlar að fara og vera hjá pabba sínum í smá tíma.... þá verðum við gaurarnir bara "ein" heima.... það er bara ágætt, maður á víst ekki börnin sín ein (þó svo að sumir virðast halda það) þannig að maður verður að leyfa öðrum að fá tíma með þeim líka. Kristín Birna er líka svo heppin að eiga 2 yndislegar fjölskyldur sem dúllast með hana við hvert tækifæri :)
jæja þetta er orðið alltof langt blogg :) ... ef þið viljið fá að vita meira þá verðið þið bara að hringja í mig, því sumt setur maður ekki á vefinn hehe ;)
Allavega er ég bara rosalega ánægð og hamingjusöm á þessum mánudegi ... það er sko ótrúlega gaman að vera ég ;)
kær kveðja
Katrín