jæja sjaldan skrifa sumir en skrifa þó ;)
Ég kom heim á síðasta miðvikudag, brunaði heim eftir morgunvaktina og mikið var nú gaman að hitta gullmolana mína aftur, Jón Elí knúsaði mig allt kvöldið og sagði að ég mætti aldrrei fara aftur til Rrrreykjavíkur. Kristín Birna var alveg hissa og var smá stund að átta sig á að mamma hennar væri í alvörunni komin en svo ýtti hún bara bræðrum sínum í burtu til að knúsa mig alein. :)
Ég er búin að vera í fríi alla vikuna sem er æði, KB er reyndar búin að vera veik (já hörkukonur veikjast víst líka stundum) en hún er öll að hressast. Hún er svoo dugleg, rúntar um allt sjálf á bílnum sínum kann að beygja og bakka, svo babblar hún allan daginn (veit ekki hvaðan hún hefur það að tala mikið, hlýtur að vera úr föðurfjölskyldunni ;))
Svo er stóra ÁTAKIÐ byrjað, fer í ræktina á hverjum morgni kl SEX og bara h0llusta einsog Ruccola salat, túnfiskur og fleira hehe spennandi :) ... já núna á sko að taka á því svo ég komist í bikiníið fyrir Lanzarote, já þið lásuð rétt, gamlan er að fara til útlanda í fyrsta skiptið í 20 ár. Þökk sé mínum yndislegu vinkonum Ólöfu og Elvu (þið eruð æði), þá mun ég og strákarnir mínir fara út 6. júní og vera í 2 vikur í sól og gleði, en KB ætlar að vera hjá pabba sínum á meðan, hún kemur með næst :)
jæja þetta er víst nógar fréttir í bili :)
kærar kveðjur
Katrín
p.s. hvernig væri að commenta ?? ;)