alltaf lærir maður eitthvað nýtt, og þetta sinn lærði ég af idolinu ;)
þannig er mál með vexti að síðan ég var lítil hef ég sungið ....
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær,
ég trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær.
Og þá mun allt verða eins og var
sko áður enn þú veist, þú veist
og þetta eina sem útaf bar
okkar á milli í friði leyst.
Og seinna þegar tunglið hefur tölt um langan veg
þá FÖRUM VIÐ TIL TUNGLSINS SEM VIÐ ELSKUM ÞÚ OG ÉG!!!!!!!!!!
en í gær komst ég að því að það ætti að vera ÞÁ TÖLUM VIÐ UM DRAUMINN SEM VIÐ ELSKUM ÞÚ OG ÉG.
Ég hef oft og lengi velt fyrir mér afhverju þau fari til TUNGLSINS en alltaf komist að þeirri niðurstöðu að það hljóti að vera bara rosalega rómó að fara þangað!!
langaði bara að deila þessu með ykkur, þegar ég verð stór og eignast mann þá ætla ég að fara til tunglsins sem við elskum ég og hann hehe
góða helgi, ég er spá í að smella mér á Todmobile í kvöld með stelponum ;) .. vill einhver koma með??
kveðja
Katrín söngkona hehe