Halló halló
Loksins get ég skrifað eitthvað hérna. Ég hef ekki hugmynd um hvað málið er með þessa mynd hérna fyrir neðan, ég tók hana ekki en sennilega hefur síminn minn sjálfstæðan vilja og hann hefur viljað sýna ykkur hvað lífið er svart í borg óttans hehe.
Annars bara allt gott að frétta héðan, brjálað að gera í verknáminu og fullt fullt af námstækifærum, ég verð sko alltaf betri og betri í hjúkkustörfunum :)
Ég er að fara heim á Ak á miðvikudaginn og hlakka svooo til, er orðið illt í hjartanu ég sakna gullmolanna minna svo mikið, ég er bara svo háð þeim að það er ótrúlegt. En ég tala nú við þau á hverjum degi og KB hlær bara í símann, JE segir bara mamma ég enka sig og sá stóri spyr bara um einhverja tölvuleiki hehe ... þau eru bara æðisleg
jæja er að fara á kvöldvakt og ætla að henda mér í kringluna áður ;)
skrifa næst þegar ég verð komin heim á Ak .
Katrín