heil og sæl ;)
Helena mín er víst búin að "klukka" mig, sem þýðir að ég á að skrifa 5 staðreyndir um sjálfa mig.
1. Ég er ótrúlega rík því ég á 3 falleg og yndisleg börn, frábæra fjölskyldu og yndislega vini.
2. Ég get allt sem ég ætla mér m.a. borað í vegg, keyrt lyftara, prónað og bara hvað sem er ;)
3. Ég ætla að verða frábær hjúkka þegar ég útskrifast eftir rúmt eitt og hálft ár
4. Ég vildi að ég væri ekki laglaus og kynni að spila á gítar :)
5. Ég hef upplifað margt í lífinu bæði gott og slæmt en það hefur þroskað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag... góðri manneskju (vona ég) ;)
Jæja þá er þessu klukki lokið, en annars var helgin mjög fín, byrjaði á fimmtudaginn með því að fara út að borða með hjúkkubekknum mínum, sem endaði með alltof mörgum bjórum á Amor hehe, bara gaman ;)
Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður, að bora í vegg ekkert mál, að keyra lyftara ekkert mál ... já það er ekkert mál!!!
Svo var helgin helguð fjölskyldunni, og heimilisstörfum ... bæsaði 3 hillur og einn lyklaskáp, föndraði, boraði upp fullt fullt af skrúfum og setti upp myndir og hillur ... .já síðasta vígið er fallið, ég hélt ég myndi aldrei getað borað í vegg en svo kom pabbi minn besti og gaf mér borvél um daginn og auðvitað varð ég að prufa hvort ég gæti borað og viti menn konan fór létta með það hehe ;)
En svo verður ekkert smá gaman á næstu helgi því þá ætlum ég og Una besta mín að fara i Laufskálarétt og það verður sko BARA gaman hjá okkur!!! hlakka mikið til
En jæja best að fara að sinna börnum og búi
kveðja Katrín