hellú! jæja verknámið búið og páskarnir búnir og við tekur kaldur veruleikinn á Akureyri. Við komum í gær, 2 flugvélar og samtals 90 mín flugtími - óþolandi að það sé ekki bara beint flug ísafj- ak! En sonna eridda, er búin að hafa það mjög gott, og verknámið var vægast sagt æðislegt, yndislegt starfsfólk á FSÍ sem gerði allt sem það gat til að fræða mig og ég held að það hafi bara gengið vel! Og svo voru páskarnir alveg hreint frábærir það var djammað, sofið borðað, djammað meir og borðað meir og sofið meir hehe ... jú og svo hélt ég eitt stykki barnaafmæli á annan í páskum fyrir prinsinn minn hann Jón Elí og fór í eitt afmæli á sunnudag því þá átti annar prins hann Hjörtur Smári afmæli, úff hvað þetta er alltof fljótt að líð þeir eru nýfæddir og strax 3ja ára ég bara skil þetta því ekki eldist ég neitt bara börnin hehe. En jæja er búin að STEINLIGGJA með einhverja flensu síðan ég kom og ég get varla hugsað fyrir hausverk og get varla andað því ég er svo stífluð í frá nösum og uppí haus! þannig að ég ætla að hætta að bulla í bili og skrifa meira seinna þegar ég veit hvað ég er að skrifa! ... ef einhver vill hjúkra mér þá er það vel þegið! bara mæta og stjana við mig