hæ hæ! Það var geðveikt gaman í gær, Sveppi og Auddi eru snillingar og við grenjuðum úr hlátri yfir ruglinu í þeim. Diddú söng einsog engill einsog vanalega, og paparnir stóðu alveg fyrir sínu - þetta var á heildina litið frábært kvöld fyrir utan það þegar einhver helv. drusla hoppaði ofaná tána á mér - það var heavy sárt og er ég núna marin og bólgin á tánum! Ætlaði sko aldeilis að sofa út í dag en vaknaði klukkan tíu og bara gat ekki sofið lengur .. dreif mig á fætur og fór bara og lærði soldið þó svo að Stína segði að það væri bannað! .. en allavega mjög ánægð með gærkvöldið og bara gaman að vera til ... ætla að fara að gera eitthvað ... Stína, Rebekka og þið hin SKÁL Í BOTN OG RESTINA Í HÁRIÐ! hehe