góða kvöldið fólk! Engin smá kraftur í minni núna, settist niður þegar ég var búin að svæfa prinsinn og byrjaði á þessari blessuðu ritgerð sem ég hef ekkert nennt að sinna og viti menn er búin með 2 blaðsíður á örstuttum tíma jei! En annars ekkert að ske þessa dagana, nema slappa af og slappa af, piff það á nú ekki við mig að vera að hanga og gera ekki neitt alla daga, en ætla sko að skella mér í skólann í fyrramálið! Ég hlakka svo til að fara suður, fer eftir 12 daga hehe, og stoppa þar í 3 daga og fer svo HEIM í sæluna, ég fer í verknám á sjúkrahúsið á Ísafirði, það verður örugglega mjög gaman, og gaman að komast heim til að sýna mig hehe og sjá aðra .... jæja ætla að halda áfram með ritgerðina sem bæðeivei er um alzheimer, mjög spennandi ... heyrumst síðar