Hvernig var á Spáni?? Það var mjög fínt!!!
Greinilegt að blogg andinn hefur ekki heimsótt mig í sumar, enda búið að vera nóg að gera........ vinna, vinna, vinna og aftur vinna, sem er bara fínt, fullt af reynslu og fullt af námstækifærum :) Bara gaman
En við erum farin að bíða spennt eftir að komast heim til okkar,sem verður eftir 11 daga ... jibbý!!!
Jón Elí á Blö hjá ömmu og afa og unir sér vel þrátt fyrir að sakna mömmu sinnar stundum mjög mjög mikið en það er bara af því hann elskar mig svo rrroosa mikið :) ... Kristín Birna skrapp í sumarbústað um helgina með pabba sínum og Ágúst fór í sumarbústaðinn með ömmu og afa þannig að mamman var bara AL ALEIN í víkinni, en var nú aðallega bara í vinnunni með tárin í augunum yfir því að vera alein hér og ALLIR á Ak að skemmta sér ... en svona eridda bara :)
Svo er nú undirbúningurinn fyrir STÓR afmælið að fara að byrja ... það þarf nú að skipuleggja svona merkisatburð vel og vandlega :)
jæja lífið er annars bara gott og skemmtilegt og allir hressir og kátir
kveðja
Katrín ofurhjúkka