Amma ég er sko hættur við að verða slökkviliðsstjóri og ætla að verða skólastjóri þegar ég verð stór. Nú ahverju?? Afþví að skólastjórar þurfa aldrei að gera neitt, þeir sitja bara inná skrifstofu alla daga og gera ekki neitt, ég hef að minnsta kosti ALDREI séð skólastjórann í mínum skóla!!!
En það breyttist nú í fyrradag, 6 ára sonur minn fékk að fara til skólastjórans! jamm búinn að vera 2 mánuði í skólanum og búinn að fara til skólastjórans!!! Hann var óþekkur í kennslustund og neitaði að hlýta kennaranum, þannig að HANN HEIMTAÐI að fá að fara til skólastjórans. Þeir ræddu saman og leystu þessi mál !!
Já hann er snillingur ;) ...... hann er svoo líkur nafna sínum stundum að það er ekki fyndið, honum tekst að týna og gleyma skólatöskunni, íþróttatöskunni, nærbolunum, gammosíunum, flíspeysunni svo ekki sé talað um húfur og vettlinga! Og svo getur hann verið 1-2 klukkutíma á leiðinni heim úr skólanum (skólinn er 5 mín í burtu)
En nenni ekki að skrifa meira .... kveðjur út Latabæ ;)
Sprellmót háskólans var á föstudaginn og það var gargandi gaman einsog vanalega ;) ...... og auðvitað lét gamlan sig ekki vanta, og var mjög smart að vanda !!!! þær gerast nú ekki flottari en þetta.... vandar bara haglarann og þá er maður kominn í löggulíf! ....
Svo er bara allt það besta að frétta, ég er byrjuð í verknámi á bæklunardeild, og er einmitt að fara á kvöldvakt, gullmolarnir eru hressir að vanda!
Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana að mig vantar sirka 8 klst í sólarhringinn, og ég er farin að sjá jólafríið í hyllingum, ohhh get ekki beðið eftir að fara í víkina mína fögru og hitta alla skemmtulegu og yndislegu ættingjana og vinina (og Stebbu mín sem ég sakna svooo mikið). En jæja ætlaði aðallega að deila þessari fögru mynd með ykkur.