Góða kvöldið þið sæta fólk!
Það er búið að vera nóg að gera hér, á sunnudag krassaði talvan mín en auðvitað gat ég lagað hana, var einhver fjandans vírus í henni og hún var alveg í fokki. Svo hrundi netið í gær því ogvodafone var að kaupa margmiðlun og þeir fóru eitthvað að uppfæra búnaðinn og þá bara datt ég út og var netlaus í meira en sólarhring ... en svo kom viðgerðarmaður í dag með nýtt módem og nú er allt í ok! Sem betur fer, vá hvað ég er háð netinu, leið bara illa við það að komast ekki á netið.
En annars er bara brjálað að gera í skólanum, er farin að verða stressuð fyrir prófin, úff það er bara rúmur mánuður í próf. En horfum á björtu hliðarnar það er bara 1 og hálfur mán þangað til ég kem í víkina fögru að hitta alla góðu fallegu skemmtilegu vinina og yndislegu fjölskylduna mína.
En þar sem sem allir eru alltaf með svo miklar pælingar á bloggunum sínum þá er ég með eina pælingu, eða eiginlega kenningu. Ég er nefnilega á því að karlmenn séu óþarfi, t.d. get ég nelgt nagla, ég kann á borvél, ég get sett saman húsgögn (m.a. kojur, hillur, borð og horn tölvuborð) og ég get gert þetta allt án hjálpar, svo get ég séð fyrir mér og mínum, ég get alveg gert svona "pabba hluti" með strákonum mínum, hmm hvað gera karlmenn fleira, já og svo get ég keypt mér bara einn svona Þannig að tilhvers að eiga mann, þeir eru dýrir í rekstri, þeir ganga alltaf illa um, þeir fara í fýlu útaf engu, þeir eru oft geðvondir og þeir geta horft óendanlega mikið á fótbólta.......... hehe
HVAÐ ER SVONA MERKILEGT VIÐ ÞAÐ AÐ VERA KARLMAÐUR ???? ... HVAÐ ER SVONA MERKILEGT VIÐ ÞAÐ AÐ BORA Í VEGG?? .... AÐ KEYRA LYFTARA ... EKKERT MÁL ... JÁ ÞAÐ ER EKKERT MÁL!!!!