held ég sé bara hætt við þjóðhátíð ..... en svona eridda bara, live sucks some times! En annars bara fínt að frétta, merkilegustu fréttirnar eru sennilega þær að ég fór EKKI á Papaball um helgina, heldur var ég bara edrú og fór smá rúnt fyrir utan ball like old times hehe .... en svo hvet ég alla til að skella sér á Jónsmessu dansleik á Ingjaldssandi um helgina, það er bara snilld, að mæta með tjaldið og skella sér á ball og djamma fram á morgun :)
en ætla að koma prinsonum í háttinn ... hafið það gott
halló halló
er á næturvakt, rosa stuð var i helgarfríi á síðustu helgi og kíkti í sumarbústaðinn með prinsana mína, Unu og Sögu og Önnu .... það var mjög gaman og notalegt. Svo á laugardaginn þá fóru prinsarnir í pössun til mömmu og pabba og við (ég, Una, Anna og Sóley) fórum í húsmæðraorlof á Flateyri hehe ...sem var mjög gaman ... Anna eldaði góðan mat ummm og svo kjöftuðum við endalaust og skelltum okkur svo á Vagninn þar sem Óli Palli rokklandsgæji tryllti lýðinn (Lýð lækni sko). Svo var að sjalfsögðu eftirá partý á tveim stöðum á Flateyri og að sjálfsögðu skellti ég mér í þau og kom síðust heim einsog vanalega, ótrúlegt hvað ég hef mikið úthald alltaf þrátt fyrir háan aldur hehe. Svo er bara kominn þessi rosalega þjóðhátíðarlöngun í mig og þar sem ég er í fríi um verslunarmannahelgina þá er ég að spá í að skella mér .... vona bara að það fái engin flogaveikiskast í þetta sinn og ég komist á leiðarenda því síðast þegar ég ætlaði að fara til eyja þá þurfti báturinn að snúa við vegna þess að einhver fékk flogaveikiskast og svo þegar átti að leggja í hann aftur var komin haugabræla og hætt við ferðina og þá fór ég bara á köntrýhátíð á skagaströnd.
ÉG NÁÐI TÖLFRÆÐI LIGGALIGGALÁI úff ég er svo blögglöt þessa dagana, það var mjööggg gaman á skímó ballinu á suðureyri ... alveg snilldar ball sko ... og ég náði tölfræði og er mjög svo glöð með það! Er svo bara búin að vinna og taka til í garðinum .... svo dugleg hehe. Já já og svo er margt annað gott í gangi, og ég er bara glöð og ánægð þessa dagana .... svo gaman að vera til jamm sumarið er tíminn ... jæja nóg í bili, ég skrifa fljótt aftur